143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

lengd þingfundar.

[16:23]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Það hefur yfirleitt aldrei staðið á mér að greiða fyrir því að mikilvæg mál séu rædd á þinginu. Ég hef mjög oft greitt atkvæði með kvöldfundum, hvaða flokkar sem hafa kallað eftir slíku, en ég hef ekki heyrt nein rök frá forseta þingsins fyrir því af hverju við ættum að hafa kvöldfund.

Ég óska eftir því að það verði útskýrt fyrir þingheimi af hverju við ættum að hafa kvöldfund og ég skora á þá þingmenn sem segja já að gjöra svo vel og sitja í þingsalnum á meðan kvöldfundur stendur.