152. löggjafarþing — 68. fundur,  26. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[00:31]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er erfitt fyrir mig að svara því hvort ég trúi einhverju sem ekki hefur verið sagt við mig beint. Ég ætla ekki að koma hingað upp í pontu og svara fyrir eitthvað sem ég hef ekki sagt né heyrt einhvern segja. Ég tel best að sá ráðherra sem hv. þingmaður vísar til svari þeim vangaveltum sem varpað var upp hér.