144. löggjafarþing — 68. fundur,  18. feb. 2015.

lokafjárlög 2013.

528. mál
[16:54]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til lokafjárlaga fyrir árið 2013 sem dreift hefur verið á þskj. 907. Í frumvarpinu eru annars vegar lagðar til breytingar á fjárheimildum vegna frávika í mörkuðum skatttekjum og öðrum rekstrartekjum samkvæmt uppgjöri þessara tekna í ríkisreikningi 2013 miðað við áætlanir í fjárlögum og fjáraukalögum 2013 og hins vegar gerðar tillögur um niðurfellingar á tilteknum fjárheimildastöðum í árslok. Einnig fylgir frumvarpinu yfirlit um fjárheimildastöður í árslok 2013 sem gert er ráð fyrir að verði fluttar til ársins 2014. Þá er frumvarpið einnig til staðfestingar á niðurstöðum ríkisrekstrarins samkvæmt ríkisreikningi fyrir árið 2013.

Uppbygging frumvarpsins er með sama hætti og undanfarin ár og tillögur um uppgjör og ráðstöfun á stöðu fjárheimilda í árslok byggjast á sömu viðmiðunarreglum og verið hafa. Í fylgiskjali 2 er yfirlit yfir talnagrunn frumvarpsins. Yfirlitið sýnir uppruna allra fjárheimilda ársins 2013, bæði fyrir ríkissjóð í heild og einstök fjárlagaviðfangsefni. Þar er um að ræða yfirfærðar fjárheimildastöður frá fyrra ári, fjárheimildir samkvæmt fjárlögum og fjáraukalögum, millifærðar fjárheimildir innan ársins og breytingar á fjárheimildum vegna frávika ríkistekna samkvæmt þessu frumvarpi. Því næst eru tilfærð útgjöld samkvæmt ríkisreikningi og loks fjárheimildastaða í árslok, þ.e. mismunur heildarfjárheimilda og reikningsfærðra útgjalda.

Heildarfjárheimildir á árinu 2013 námu 595,4 milljörðum kr. og útgjöld samkvæmt ríkisreikningi voru 592,2 milljarðar kr. Fjárheimildastaða í árslok var því jákvæð um 3,2 milljarða kr. sem eru um 0,5% af heildarfjárheimildum ársins. Fjárheimildastaðan í árslok skiptist í samtals 26,6 milljarða kr. afgangsheimildir og 23,4 milljarða kr. umframgjöld á einstökum fjárlagaliðum.

Eins og stundum áður eru nokkrir óreglulegir liðir fyrirferðarmiklir hvað varðar stöðu gagnvart fjárheimildum. Má þar nefna 11,9 milljarða kr. umframgjöld vegna afskrifta skattkrafna, u.þ.b. 1,5 milljarða kr. hækkun lífeyrisskuldbindinga umfram áætlun fjárlaga og fjáraukalaga og tæplega 500 millj. kr. niðurfærslu á bókfærðu verðmæti eignarhluta í fyrirtækjum og sjóðum í ríkisreikningi. Í öllum tilvikum er um að ræða reikningshaldslegar uppgjörsfærslur, samtals 13,8 milljarða umfram fjárheimildir, sem voru ófyrirséðar við afgreiðslu fjáraukalaga ársins 2013 þar sem þær eru gerðar við lokun á ríkisreikningi um hálfu ári síðar. Að þessum þremur liðum frátöldum er staða gagnvart fjárheimildum í árslok jákvæð um 17 milljarða kr.

Í frumvarpinu er að vanda lagt til að árslokastöður verði annaðhvort felldar niður, eins og fram kemur í 2. gr., eða yfirfærðar til næsta árs eins og fram kemur í fylgiskjali 1.

Vík ég þá nánar að lagagreinum frumvarpsins. Í 1. gr., samanber nánari skiptingu í sundurliðun 1, eru tillögur um breytingar á fjárheimildum ársins 2013 vegna frávika markaðra skatttekna og annarra rekstrartekna stofnana frá áætlunum fjárlaga og fjáraukalaga. Lagt er til að fjárheimildir verði auknar um 1,2 milljarða samkvæmt þessu uppgjöri á fjármögnun verkefna með mörkuðum ríkistekjum. Nánar tiltekið er hér leitað eftir heimild Alþingis til að ráðstafa þessum tekjum í samræmi við það hverjar þær urðu samkvæmt uppgjöri ríkisreiknings eða hver metin fjárþörf verkefna, sem fjármögnuð voru með þessum tekjum, reyndist vera. Almennt gildir að útgjaldaheimildir hækka sem nemur mörkuðum tekjum umfram fjárlög en lækka hafi tekjurnar reynst minni en áætlað var. Þetta viðmið er þó ekki algilt því að ekki eru lagðar til breytingar á fjárheimildum vegna ríkistekjufrávika þar sem ekki er beint samband milli tekna og útgjaldaþarfar þannig að breytingar á tekjum hafi bein áhrif á kostnað. Hið sama gildir ef útgjaldaheimildir í fjárlögum hafa verið ákvarðaðar út frá verkefnum án tillits til hugsanlegra breytinga á fjármögnun með mörkuðum tekjum, svo sem framlög til vegamála.

Í 2. gr. frumvarpsins, samanber nánari skiptingu í sundurliðun 2, eru tillögur um niðurfellingar á fjárheimildastöðum í árslok 2013. Tillögur um ráðstafanir á fjárheimildastöðum í árslok byggjast á viðmiðunarreglum þar sem einkum er litið til þess hvort útgjöldin eru lögbundin þannig að þau ráðist af öðrum lögum en fjárlögum eða lúti hagrænum, kerfislægum eða reikningshaldslegum þáttum fremur en fjármálastjórn tiltekins stjórnsýsluaðila. Einnig er við það miðað að yfirfærsla afgangsheimilda í almennum stofnanarekstri og reglubundnum rekstrarverkefnum fari almennt ekki umfram 10% af fjárlagaveltu viðkomandi verkefna nema sérstakar ástæður séu taldar til annars. Einnig fellur heimildastaða niður sé viðkomandi verkefni lokið. Eins og jafnan áður hefur við undirbúning þessa lokafjárlagafrumvarps verið farið yfir alla fjárlagaliði og tillögur um yfirfærslur og niðurfellingar hafa verið gerðar með hliðsjón af málsatvikum samkvæmt þessum viðmiðunarreglum.

Tilgangur þess að takmarka yfirfærslur rekstrarfjárheimilda milli ára við 10% af veltu er meðal annars að stemma stigu við því að heimilt sé að efna til umtalsverðra útgjalda umfram fjárlög, enda auka útgjöld sem stofnað er til á grundvelli yfirfærðra fjárheimilda kostnað ríkissjóðs á sama hátt og önnur útgjöld. Við undirbúning frumvarpsins var farið yfir þau tilvik þar sem afgangsstöður fjárheimilda eru umfram framangreint viðmið. Í nokkrum tilvikum voru málsatvik með þeim hætti að fagráðuneytin töldu nauðsynlegt að flytja meiri afgangsheimildir til ársins 2014. Dæmi um slík tilvik er ef framkvæmd verkefnis hefur frestast yfir áramót eða ef stofnað hefur verið til skuldbindingar á grundvelli fenginna fjárheimilda sem ekki hefur verið gjaldfærð í ríkisreikningi.

Samkvæmt 2. gr. frumvarpsins falla niður 9,7 milljarða kr. gjöld umfram heimildir á rekstrargrunni en á greiðslugrunni fellur niður 4 milljarða kr. afgangur. Munurinn þarna á milli stafar að mestu leyti af niðurfellingu 13,8 milljarða kr. umframgjalda á þeim þremur óreglulegu liðum sem ég vék að áðan þar sem í öllum tilvikum er um að ræða reikningshaldslegar gjaldfærslur án greiðslna úr ríkissjóði á árinu.

Í fylgiskjali 1 með frumvarpinu er yfirlit yfir fjárheimildastöður sem gert er ráð fyrir að yfirfærist til ársins 2014. Hrein aukning fjárheimilda á árinu 2014 vegna þessara ráðstafana nemur 12,9 milljörðum kr. sem eru um 2% af gjaldaheimild fjárlaga 2014. Til samanburðar má nefna að í lokafjárlögum 2012 var 14,8 milljarða kr. jákvæð staða flutt til 2013, þ.e. sem svarar til 2,4% af gjaldaheimild fjárlaga 2013.

Ég hef, virðulegi forseti, farið yfir helstu þætti frumvarpsins. Með því eru lagðar fyrir Alþingi niðurstöður úr rekstri ríkissjóðs gagnvart fjárheimildum á árinu 2013 og vísast í því sambandi til greinargerða í fjáraukalögum og ríkisreikningi um meginatriði í framvindu ríkisfjármálanna og helstu frávik í tekjum og gjöldum. Einnig hefur Ríkisendurskoðun lagt fyrir Alþingi skýrslu um endurskoðun ríkisreiknings 2013. Ég tel því ekki ástæðu til að fara nánar yfir einstök atriði í frumvarpinu og legg til að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjárlaganefndar Alþingis.