Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[23:58]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Fyrst ég er komin úr stólnum kem ég bara hingað upp í púlt til þess að reyna að vanda um fyrir fólki. Mig langar til að hvetja hv. þingmenn til þess að gefa þingmönnum sem standa í púlti frið til þess að tala þar og vera ekki að gjamma stöðugt frammí. Það er bara virðingarleysi og ekkert annað.