152. löggjafarþing — 68. fundur,  26. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[00:33]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Að sjálfsögðu geng ég út frá því og trúi því að það sem hæstv. ráðherra segir sé satt og rétt. Ég ætlast hins vegar ekki til að hæstv. ráðherra komi hér upp í pontu og geri grein fyrir mínum orðum, einhverju sem ég hef sagt í fjölmiðlum. Ég ætla því að leyfa henni að koma og gera grein fyrir sinni afstöðu hvað þetta varðar.