Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 68. fundur,  26. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[00:39]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tel að Ríkisendurskoðun og ríkisendurskoðandi og Fjármálaeftirlitið séu til þess bær að skoða þetta mál ofan í kjölinn. Og aftur: Mér finnst þessi sjónarmið sem hv. þingmaður varpar fram um fortíðina og hvernig þær hafa verið notaðar mjög áhugaverðar. Mér finnst vert að taka þá umræðu á einhverju öðru plani undir öðrum lið. En akkúrat núna er svar mitt: Já, ég tel að þessar stofnanir séu fullbærar til þess að skoða málið ofan í kjölinn.