133. löggjafarþing — 69. fundur,  12. feb. 2007.

tilkynning um úrsögn úr þingflokki.

[15:01]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 7. þm. Norðvesturkjördæmis, Kristni H. Gunnarssyni:

„Það tilkynnist hér með að ég hef í dag sagt mig úr þingflokki framsóknarmanna.

Virðingarfyllst,

Kristinn H. Gunnarsson,

7. þm. Norðvesturkjördæmis.“