Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf um forföll þingmanns frá Arnbjörgu Sveinsdóttur, þingflokksformanni sjálfstæðismanna, dagsett í dag, 12. febrúar, sem hljóðar svo:
„Þar sem Björn Bjarnason, 2. þm. Reykv. n., er veikur og getur ekki sótt þingfundi óska ég eftir því með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Katrín Fjeldsted, taki sæti hans á Alþingi á meðan.“
Katrín Fjeldsted hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.