133. löggjafarþing — 69. fundur, 12. feb. 2007.
tilkynning um dagskrá.
Áður en gengið verður til dagskrár núna á eftir fer fram umræða utan dagskrár um niðurstöðu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna. Málshefjandi er hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Hæstv. umhverfisráðherra, Jónína Bjartmarz, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.