152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar.

582. mál
[22:58]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Bara svo það sé skýrt, það er ekki verið að falla frá eða þrengja styrki. Þetta er fyrst og fremst til einföldunar og ég er sannfærður um að þetta muni hafa mjög jákvæð áhrif og það eru fjármunir fyrir þessu í áætlunum. En bara svo það sé skýrt, af því að hv. þingmaður var að velta því upp hvort þetta hefði einhver áhrif á aðra styrki: Það er ekki svo.