152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar.

582. mál
[23:10]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og fyrir að fara yfir skilgreininguna á því hvað fellur undir frumvarpið. Ég vil taka undir hvatningarorð til atvinnuveganefndar um að það verði rýnt hvort þetta eigi ekki örugglega við um þessa áhugaverðu vinnslu sem á sér stað á Norðfirði þar sem eru framleiddir viðarkögglar úr viðarspæni, bæði úr endurunnu timbri og grisjunarviði. Uppbyggingarsjóður Austurlands hefur stutt við þetta verkefni síðustu ár sem þróunarverkefni, einmitt út frá því að þetta sé liður í hringrásarhagkerfinu. Það er auðvitað mjög mikilvægt til framtíðar að það séu aðrir hvatar til að fara þessa umhverfisvænu leið.