Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 69. fundur, 27. feb. 2023.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Guðlaugur Þór Þórðarson, 1. þm. Reykv. n., verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag tekur því sæti á Alþingi fyrir hann 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.