144. löggjafarþing — 69. fundur, 24. feb. 2015.
afnám verðtryggingar.
Virðulegur forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áðan, það er rangt hjá hv. þingmanni að hægt sé að tala um aðgerðaleysi þegar þvert á móti er verið að hrinda í framkvæmd gríðarlega stórum aðgerðum, aðgerðum sem byggja á tillögum sérfræðihóps um afnám verðtryggingar. Vinna við afnám verðtryggingar er í fullum gangi og algjörlega rangt að tala um aðgerðaleysi í því sambandi.