152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[17:33]
Horfa

Helga Þórðardóttir (Flf):

Frú forseti. Ég vil koma hér upp í ræðustól til að gefa hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórn gott ráð. Almenningur hérna úti er rasandi vegna þessarar sölu og fólk er dapurt en ekki umræðan. Fólk er búið að missa traustið og ríkisstjórnin er búin að missa traustið og margir hafa sagt við mig: Og situr Katrín bara og samþykkir þetta? Gerið það fyrir ykkur, setjið á fót rannsóknarnefnd Alþingis svo þið fáið traust aftur.