142. löggjafarþing — 7. fundur,  18. júní 2013.

dreifiveita og raforka til garðyrkjubænda.

[14:05]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka svör ráðherrans og treysti því að þessi mál fari í góðan farveg. Hérna er um gríðarlega mikið hagsmunamál að ræða. Ylrækt er grein sem við þurfum að efla og leggja ríka rækt við og ég treysti ráðherranum manna best til að koma því til skila.