152. löggjafarþing — 7. fundur,  8. des. 2021.

störf þingsins.

[15:41]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Fréttir vikunnar hafa væntanlega ekki farið fram hjá ykkur þar sem Landsvirkjun tilkynnti að skerða þyrfti nú þegar afhendingu á raforku til fyrirtækja vegna raforkuskorts og annmarka á flutningsgetu. Þarf það að koma okkur á óvart? Nei, virðulegi forseti. Þetta getur ekki komið á óvart. Það er staðreynd að raforkuöryggi víða um land er ábótavant. Flutningslínur eru mannvirki sem komin eru í mikla viðhaldsþörf. Það eru landshlutar sem vantar hreinlega tengingu við meginstofnæðir landsins og búa við skert raforkuöryggi allt árið. Þetta ástand veldur óþægindum fyrir almenning og veldur því að atvinnutækifæri eru andvana fædd vegna skorts á öryggi raforku. Margur viðkvæmur búnaður þolir ekki rafmagnsleysi og ekki er hægt að sjá fyrir vinnutap. Fyrir sléttum tveimur árum gekk óveður yfir landið með tilheyrandi tjóni á flutningslínum raforku, bæði dreifikerfi og flutningskerfi Landsnets. Í kjölfarið fóru stjórnvöld af stað með samráðshópa um hvernig koma mætti í veg fyrir að slíkt tjón endurtæki sig og finna veikustu hlekkina í flutningskeðjunni. Hrundið var af stað átaksverkefni og ýmislegt bætt og endurnýjað.

En þau landsvæði sem ekki búa við hringtengingu búa enn við sama óöryggið. Árið 2009 skipaði þáverandi iðnaðarráðherra ráðgjafahóp til þess að meta leiðir til að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum og í fyrra kom út skýrsla samráðshóps um bætt afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum. Því er nú verr og miður að lítið hefur þokast í þessum málaflokki síðasta áratuginn.

Virðulegi forseti. Það á ekki að vera hluti af aðventustemningunni að uppgötva vanmátt flutningskerfis raforku í landinu, líkt og þegar jólasería er tekin úr geymslu á Þorláksmessukvöld og allar perur eru ónýtar og búið er að loka öllum verslunum. Það verður að athuga og hafa í huga í alvöru virkjunarkosti á Vestfjörðum ásamt því að flýta viðhaldi og nýbyggingum flutningskerfisins. Fyrst þá getum við treyst raforkuöryggi um allt land.