Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

atkvæðagreiðsla um birtingu greinargerðar um Lindarhvol.

[14:28]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Sú grein þingskapa sem hv. þingmaður vísaði til hefur tvær málsgreinar og biður forseti hv. þingmann að lesa líka 2. mgr. þar sem tekið er fram að starfsemi ríkisendurskoðanda falli ekki undir stjórnsýslu Alþingis. (Gripið fram í.) Hv. þingmenn verða að hafa í huga að þegar forseti vísaði til þessarar greinar varðandi stjórnsýslu Alþingis var forseti að fjalla um fyrirspurn hv. þm. Jóhanns Páls Jóhannssonar sem varðar efni og innihald sem varðar ekki stjórnsýslu Alþingis heldur eftirlitsstörf Ríkisendurskoðunar.