143. löggjafarþing — 70. fundur, 27. feb. 2014.
umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
340. mál
Forseti væntir þess að takast megi gott samstarf um hvernig fyrri umr. megi ljúka. Komi eitthvað óvænt upp á í nefndaviku sem raski áformum okkar um störf þingsins áskilur forseti sér rétt til breytinga líkt og hefð er fyrir og verður þá þingflokkum gerð grein fyrir því.