152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

málefni innflytjenda.

271. mál
[17:40]
Horfa

Erna Bjarnadóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni og framsögumanni málsins fyrir svarið, þessa yfirferð yfir persónuverndarmál. Hún nefndi að þarna geta komið við sögu upplýsingar um heilsufar. Þarna ertu náttúrlega komin alveg inn í kvikuna á fólki. Ég þarf svo sem varla að útlista það fyrir þingheimi. Mig langar bara að fylgja eftir þessari spurningu um kostnaðinn. Er í þessu kostnaðarmati horft til mögulegrar fjölgunar flóttamanna eða eru þeir sem myndu falla undir þetta — er miðað við tölur sem voru á síðasta ári?