149. löggjafarþing — 71. fundur,  27. feb. 2019.

tilkynning.

[15:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill geta þess að á fundi forsætisnefndar í hádeginu var samþykkt að falla frá áður boðaðri breytingu á starfsáætlun um að miðvikudagurinn 27. febrúar yrði nefndadagur og ákveðið að hafa þingfund eins og starfsáætlun hafði reyndar upphaflega gert ráð fyrir. Endurspeglast þetta í þeim fundi sem nú hefur verið settur.