144. löggjafarþing — 71. fundur, 26. feb. 2015.
tilkynning um skrifleg svör.
Borist hefur bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 909, um aðgerðir gegn mansali, frá Svandísi Svavarsdóttur.
Einnig hafa borist tvö bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 920, um þjóðhagslega hagkvæmni byggðaaðgerða, og á þskj. 922, um byggðakvóta, báðar frá Sigurði Erni Ágústssyni.