139. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2011.

tilkynning um dagskrá.

[14:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan 14.30 í dag fer fram umræða utan dagskrár um dóm Hæstaréttar um skipulag Flóahrepps. Málshefjandi er hv. þm. Ragnheiður E. Árnadóttir. Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.