138. löggjafarþing — 72. fundur, 2. feb. 2010.
náttúruverndaráætlun 2009-2013.
200. mál
Virðulegi forseti. Framsóknarflokkurinn styður að sjálfsögðu þessa breytingartillögu því að eðlilegasti hlutur í heimi er að náttúrustofur komi að undirbúningi og framkvæmd náttúruverndaráætlana, en ekki hvað. Einkennilegt að þetta skyldi ekki hafa verið í upphaflegu tillögunni. Þingflokkur Framsóknarflokksins segir já við þessari breytingartillögu.