133. löggjafarþing — 73. fundur, 19. feb. 2007.
samgönguáætlun fyrir árin 2007--2010.
574. mál
Herra forseti. Ég ætla ekki að þrátta við hæstv. ráðherra um hvort þetta sé mikið eða meira eða mest en ég vildi gjarnan vera fluga á vegg þegar hann flytur núverandi meiri hluta borgarstjórnar þessar fregnir, hvað borgin fær mikið út úr þessari samgönguáætlun. Það er a.m.k. ekki í samræmi við mínar skoðanir.