140. löggjafarþing — 73. fundur,  14. mars 2012.

stimpilgjald.

415. mál
[18:29]
Horfa

Flm. (Ragnheiður Ríkharðsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 36/1978, með síðari breytingum (afnám stimpilgjalda vegna kaupa á íbúðarhúsnæði einstaklings).

Þetta frumvarp, frú forseti, er tilraun til að koma til móts við vanda fjölskyldna og einstaklinga í landinu vegna húsnæðislána og mun ég nú mæla fyrir þeim breytingum sem lagðar eru til.

Með mér sem flutningsmenn að þessu frumvarpi eru þingmenn í þingflokki Sjálfstæðisflokksins.

Við leggjum til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á 35. gr. a. laganna:

a. Orðið „fyrstu“ í 1. mgr. falli brott.

b. 2. mgr. orðist svo:

Skilyrði niðurfellingar samkvæmt 1. mgr. er að lánsfjárhæð sú sem fram kemur í hinu stimpilfrjálsa skjali skuli einvörðungu ætluð til fjármögnunar kaupa á viðkomandi fasteign.

c. 4. og 5. mgr. falli brott.

d. Í stað orðanna „séu uppfyllt“ í 1. málslið 6. mgr. komi: sé uppfyllt.

e. Í stað orðanna „skulu eftirfarandi gögn liggja fyrir“ í 2. málslið 6. mgr. komi: skuli liggja fyrir afrit af þinglýstum kaupsamningi, afsali eða annarri eignarheimild vegna fasteignar sem hið stimpilfrjálsa skjal er gefið út til fjármögnunar kaupa á.

f. A–c-liðir 6. mgr. falli brott.

g. Á eftir 6. mgr. komi ný mgr., svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 24. og 26. gr. skal, þegar fasteignaveðskuldabréf einstaklings er endurnýjað með nýju fasteignaveðskuldabréfi sem kemur í stað þess eldra, ekki greiða stimpilgjald af þeim hluta nýja fasteignaveðskuldabréfsins sem svarar til uppreiknaðs virðis eldra fasteignaveðskuldabréfsins ásamt vanskilum.

2. gr. hljóðar svo:

Lög þessi öðlast gildi 1. maí 2012.

Virðulegur forseti. Með frumvarpi þessu er lagt til að stimpilgjöld vegna kaupa einstaklinga, einstaklings eða fjölskyldu á íbúðarhúsnæði til eigin nota verði afnumin, ekki eingöngu á fyrstu íbúð heldur almennt afnumin. Það eru augljós rök sem hníga að því að auðvelda einstaklingum að koma sér þaki yfir höfuðið og teljum við flutningsmenn að ekki eigi að nýta slík viðskipti til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð.

Í 35. gr. a. í lögum um stimpilgjald, nr. 36/1978, er nú kveðið á um að kaupandi íbúðarhúsnæðis til eigin nota skuli undanþeginn stimpilgjaldi við fyrstu kaup. Við flutningsmenn teljum rétt að víkka út það ákvæði, þannig að það taki til allra kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði til eigin nota. Jafnframt er lagt til, eins og greint var frá í nýrri málsgrein á eftir 6. mgr. 35. gr. a að endurfjármögnun lána vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota verði undanþegin stimpilgjaldi. Lagðar eru til breytingar þar að lútandi þessu til samræmis.

Í dag er það svo, virðulegur forseti, að af veðskuldabréfum og tryggingabréfum, þegar skuld ber vexti, ber að greiða 1,5% stimpilgjald af fjárhæð bréfs. Af afsölum, kaupsamningum og öðrum yfirfærslugerningum um fasteign greiðist 0,4% stimpilgjald af fasteignamati eignar að lóðarréttindum eignar meðtöldum. Afnám þessara gjalda, sem geta numið umtalsverðum fjárhæðum, er því til augljósra hagsbóta fyrir einstaklinga og fjölskyldur.

Virðulegur forseti. Hér í þessum sal er æðioft rætt um á hvern hátt koma megi til móts við einstaklinga og fjölskyldur í landinu vegna lána til húsnæðiskaupa. Með þessum einföldu breytingum á lögum um stimpilgjald, nr. 36/1978, með síðari breytingum, getur löggjafinn á einfaldan hátt aðstoðað einstaklinga og fjölskyldur með því að afnema stimpilgjald á íbúðarhúsnæði til eigin nota. Þetta getur komið fjölskyldum til góða ef þær þurfa eða vilja minnka við sig vegna þess að þær eru í of stóru húsnæði. Ef þær vilja fara úr dýrara húsnæði í ódýrara þá auðveldar það að afnema stimpilgjald af fasteignakaupum fólki að gera svo. Ekki síður, frú forseti, í ljósi þess sem margoft hefur komið fram hér, að vegna gengistryggðra lána er verið að gefa fólki í auknum mæli kost á því að taka óverðtryggð lán, getur það komið einstaklingum og fjölskyldum til góða að afnema einnig stimpilgjald þegar um endurfjármögnun lána vegna húsnæðiskaupa er að ræða.

Virðulegur forseti. Við flutningsmenn frumvarps um breytingar á lögum nr. 36/1978, um stimpilgjald, teljum að með þessum breytingum á 35. gr. a. laganna geti Alþingi, löggjafinn, á einfaldan hátt komið til móts við einstaklinga og fjölskyldur í landinu.

Ég óska þess að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til efnahags- og viðskiptanefndar.