152. löggjafarþing — 74. fundur, 16. maí 2022.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundir geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um.
Er óskað atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Já.) Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu og fer hún fram að loknum óundirbúnum fyrirspurnum.