136. löggjafarþing — 75. fundur, 5. feb. 2009.
gjaldþrotaskipti o.fl.
281. mál
Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir hlutverki héraðsdómara í þessu ferli er sú, eins og ég sagði í framsögu minni, að greiðsluaðlögun tekur mjög mið af nauðasamningsferlinu. Um er að ræða einföldun á því ferli og þar hefur héraðsdómari þetta hlutverk með höndum.