141. löggjafarþing — 75. fundur,  30. jan. 2013.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[18:50]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Nú má gera ráð fyrir að þessi umræða muni standa í nokkurn tíma þannig að ef vilji er til þess að láta málið taka nýja stefnu liggur fyrir af hálfu okkar þingmanna Sjálfstæðisflokksins að við erum tilbúnir til að setjast niður og ræða það.