148. löggjafarþing — 75. fundur, 11. júní 2018.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Jón Gunnarsson, 5. þm. Suðvest., geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti fyrir hann annar varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Karen Elísabet Halldórsdóttir. Fyrsti varamaður á lista hefur boðað forföll.
Karen Elísabet Halldórsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.