146. löggjafarþing — 75. fundur,  30. maí 2017.

stuðningur til kaupa á fyrstu íbúð o.fl.

553. mál
[18:11]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð og lögum um opinber fjármál.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð til að styrkja framkvæmd laganna og lagt er til að dagsetningu í ákvæði til bráðabirgða II í lögunum sé breytt.

Í umræðum um málið kom fram hér í þingsal hugmyndir um það að lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð yrðu látin ná til kaupa einstaklinga, sem misst hefðu fasteign við nauðungarsölu vegna bankahrunsins, á nýrri fasteign. Fyrsti minni hluti tekur undir þessar hugmyndir og beinir því til fjármála- og efnahagsráðherra að taka þær til nánari skoðunar og leggja frumvarp um efnið fram hér á Alþingi fyrir lok þessa árs.

Fyrsti minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt.

Lilja Alfreðsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins, en hún var einn flutningsmanna frumvarpsins.

Sigrún Ingibjörg Gísladóttir sat fundinn fyrir Jón Steindór Valdimarsson og er samþykk áliti þessu.

Undir álitið rita, auk þess sem hér stendur, Brynjar Níelsson, Njáll Trausti Friðbertsson og Vilhjálmur Bjarnason.