Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 75. fundur,  8. mars 2023.

viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[15:37]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég kem hérna upp í raun til að fylgja eftir ósk sem ég bar fram við forseta á fundi okkar þingflokksformanna með forseta í fyrradag þess efnis að hæstv. fjármálaráðherra verði við óundirbúinn fyrirspurnatíma á morgun en hann var ekki viðstaddur á mánudaginn. Vil ég bara ítreka þá ósk hér, sér í lagi í návist hæstv. ráðherra, að við óskum hans nærveru í óundirbúnum fyrirspurnatíma á morgun. Ég fæ ekki séð að við því hafi verið orðið hingað til en betur má ef duga skal.