131. löggjafarþing — 76. fundur,  17. feb. 2005.

Meinatæknar og heilbrigðisþjónusta.

537. mál
[11:25]

heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F) (andsvar):

Herra forseti. Eins og kom fram í framsöguræðu minni, þó að það hafi kannski ekki verið nógu skýrt, þá er hér átt við þá sem stunda nám sitt hér á landi. Tækniháskólinn hefur séð um þetta nám hingað til en menn vildu ekki, miðað við þær aðstæður sem nú eru uppi, binda það eingöngu við þann skóla, þannig að hér er átt við nám hérlendis.