136. löggjafarþing — 76. fundur, 6. feb. 2009.
Seðlabanki Íslands.
280. mál
Virðulegi forseti. Ég bið hv. þingmann að lesa 4. gr. þessa frumvarps en þar stendur:
„Í peningastefnunefnd situr seðlabankastjóri, tveir af yfirmönnum bankans á sviði mótunar og framkvæmdar stefnu í peningamálum og tveir sérfræðingar á sviði peningamála sem seðlabankastjóri skipar til þriggja ára í senn að fenginni staðfestingu forsætisráðherra.“
Ég tel að þetta svari spurningu hv. þingmanns.