152. löggjafarþing — 76. fundur,  17. maí 2022.

leigubifreiðaakstur.

470. mál
[14:43]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðaakstur, reyndar í þriðja sinn. Frumvarpið var lagt fram á 150. og 151. löggjafarþingi og er nú lagt fram í þriðja sinn í nær óbreyttri mynd. Gerðar hafa verið minni háttar breytingar á fáeinum ákvæðum frumvarpsins frá síðustu framlagningu sem nánar er gerð grein fyrir í greinargerð sem fylgir frumvarpinu.

Heildarendurskoðun laga um leigubifreiðar hófst á sínum tíma með skipun starfshóps, um endurskoðun á þeim reglum sem gilda um leigubifreiðaakstur á Íslandi, í október 2017. Starfshópurinn skilaði tillögum sínum í skýrslu til ráðuneytisins í mars 2018. Í skýrslunni kom fram það mat hópsins að breytingar á íslensku regluverki um leigubifreiðar væru óhjákvæmilegar, m.a. vegna þess að núgildandi lög samrýmist að öllum líkindum ekki ákvæðum EES-samningsins eins og þar stóð. Frumvarp þetta byggir að meginstefnu til á tillögum þeim sem starfshópurinn lagði til í skýrslu sinni auk þess sem umsagnir sem bárust í samráðsferli hafa verið hafðar til hliðsjónar. Þá hefur við mótun frumvarpsins verið horft til þróunar löggjafar í nágrannaríkjum okkar.

Tildrög frumvarpsins má rekja til þess að í janúar 2017 hóf Eftirlitsstofnun EFTA frumkvæðisathugun á leigubifreiðamarkaðnum á Íslandi og mögulegum hindrunum að aðgengi að honum. Af samskiptum við stofnunina mátti ráða að Eftirlitsstofnunin teldi líkur á að íslensk löggjöf um leigubifreiðar fæli í sér aðgangshindranir sem samræmdust ekki alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins. Eftirlitsstofnunin hafði þá þegar gefið út rökstutt álit um leigubifreiðalöggjöf í Noregi, en þágildandi löggjöf þar í landi svipaði um margt til þeirrar íslensku. Í álitinu komst Eftirlitsstofnunin að þeirri niðurstöðu að norska ríkið bryti gegn skyldum sínum samkvæmt EES-samningnum að því er varðar stofnsetningarrétt ríkisborgara EES-ríkjanna til að hefja og stunda sjálfstæða atvinnustarfsemi og til að stofna og reka fyrirtæki með þeim skilyrðum sem gilda að landslögum um ríkisborgara þess ríkis þar sem stofnsetning fer fram.

Í nóvember síðastliðnum barst íslenska ríkinu svo rökstutt álit ESA þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að ríkið brjóti gegn skyldum sínum samkvæmt EES-samningnum en rökstutt álit er undanfari dómsmáls fyrir EFTA-dómstólnum. Því er líklegt að verði ekki gerðar breytingar á regluverki því er snýr að leigubifreiðum hér á landi muni íslenska ríkið þurfa að svara fyrir það fyrir EFTA-dómstólnum.

Það frumvarp sem hér er lagt fram er afrakstur vinnu áðurnefnds starfshóps samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Samgöngustofu og samráðs við hagsmunaaðila og almenning. Áður en frumvarpið var lagt fram í fyrsta sinn, á 150. löggjafarþingi, fór fram víðtækt samráð við almenning og hagsmunaaðila. Í kjölfar samráðsins voru gerðar talsverðar breytingar á frumvarpinu í samræmi við ábendingar umsagnaraðila. Þegar frumvarpið var til meðferðar á 150. og 151. löggjafarþingi fór fram víðtækt samráð við hagsmunaaðila á vegum umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Í ráðuneytinu hefur verið farið yfir þær umsagnir og gerðar efnislegar breytingar á fáeinum ákvæðum frumvarpsins í samræmi við ábendingar sem bárust þingnefndinni.

Markmiðið með frumvarpinu, sem ég mæli hér fyrir, er fyrst og fremst að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu fyrir almenning á Íslandi. Þá er frumvarpinu ætlað að færa lög og reglur um leigubifreiðar til nútímalegra horfs þar sem öruggar og tryggar samgöngur eru hafðar að leiðarljósi auk þess að tryggja að íslenska ríkið uppfylli þjóðréttarlegar skuldbindingar sínar. Verði frumvarpið að lögum mun það auka atvinnutækifæri fjölbreyttra hópa. Afnám reglna um lágmarksnýtingu leyfis er þannig til þess fallið að veita kynjunum jafnara aðgengi í stéttina. Í dag eru karlar mun fjölmennari en konur í stéttinni en almennt eru konur taldar líklegri til að starfa í hlutastörfum en karlar. Þá er afnám reglna sem kveða á um að umsækjandi um leyfi hafi starfað fyrir leyfishafa í ákveðinn dagafjölda til að eiga möguleika á að fá útgefið leyfi til þess fallið að veita þeim sem hafa engin persónuleg tengsl við stéttina jafnari tækifæri á við aðra til að fá útgefið starfsleyfi.

Neytendur hafa kallað eftir því að opnað verði á þjónustu farveitna hér á landi til viðbótar við þjónustu hefðbundinna leigubifreiða. Frumvarp þetta gerir þó engan greinarmun á farveitum og hefðbundnum leigubifreiðastöðvum. Því munu farveitur þurfa að uppfylla sömu skilyrði og hefðbundnar leigubifreiðastöðvar til að fá útgefið leyfi. Þannig er gætt að sjónarmiðum um jöfn samkeppnisskilyrði og gert er ráð fyrir því að kjósi bílstjórar að starfa fyrir farveitur sem nýta snjalltækni við milligöngu um þjónustuna þurfi þeir að uppfylla öll sömu skilyrði og þeir sem hyggjast starfa sem leigubifreiðastjórar í hefðbundnari skilningi.

Virðulegi forseti. Ég mun nú gera nánari grein fyrir helstu nýmælum og breytingum sem felast í frumvarpi þessu.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að þrjár tegundir leyfa verði í umferð. Fyrst ber að nefna atvinnuleyfi sem veitir mönnum rétt til að starfa sem leigubifreiðarstjórar. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir rekstrarleyfi sem veitir mönnum rétt til að reka eina leigubifreið auk þess að starfa sem leigubifreiðarstjórar. Loks ber að nefna starfsleyfi fyrir leigubifreiðastöðvar.

Atvinnuleyfi, samkvæmt frumvarpinu, veitir mönnum rétt til að starfa við leigubifreiðaakstur án þess að reka eigin leigubifreið. Leyfið er ekki háð skilyrðum um lágmarksnýtingu og veitir því rétt til að starfa við leigubifreiðaakstur, hvort heldur sem er að aðalstarfi, hlutastarfi eða í afleysingum. Rekstrarleyfi, samkvæmt frumvarpinu, veitir mönnum rétt til að starfa sem leigubifreiðarstjórar og til að reka eigin leigubifreið. Þannig þurfi rekstrarleyfishafar ekki að hafa atvinnuleyfi að auki. Rekstrarleyfi er ekki frekar en atvinnuleyfi háð skilyrðum um lágmarksnýtingu.

Gerðar eru talsverðar breytingar á ákvæðum um leigubifreiðastöðvar og starfsleyfi þeirra. Þannig er í frumvarpinu ekki sérstaklega gert ráð fyrir því að leigubifreiðarstjórum sé skylt að hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð en samkvæmt gildandi lögum er slík skylda til staðar á takmörkunarsvæðunum. Engu að síður eru settar í lög reglur um starfsleyfi stöðva og áfram verður því heimilt að hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð. Einhverjir leigubifreiðastjórar hafa kallað eftir því að stöðvaskylda sem taki til allra leigubifreiðastjóra verði fest í lög og vil ég nota þetta tækifæri og hvetja hv. umhverfis- og samgöngunefnd til að skoða mögulegar útfærslur á slíkri skyldu. Gert er ráð fyrir því að fjöldatakmarkanir á útgefnum leyfum til að stunda leigubifreiðaakstur verði afnumdar og munu takmörkunarsvæði því heyra sögunni til. Heimildir Samgöngustofu til eftirlits með starfseminni eru skýrðar og auknar frá því sem verið hefur samkvæmt gildandi lögum. Þannig er gert ráð fyrir því að Samgöngustofu verði heimilt að krefjast þeirra upplýsinga úr hendi leyfishafa og annarra sem kunna að miðla leigubifreiðaþjónustu sem nauðsynlegar eru til eftirlits. Heimildir stofnunarinnar til að svipta leyfishafa leyfi eru einnig gerðar skýrari og áhrifaríkari en verið hefur. Gerðar eru breytingar á þeim skilyrðum sem umsækjendur þurfa að uppfylla til að geta fengið útgefið leyfi til að stunda leigubifreiðaakstur, m.a. eru ákvæði um brotaferil umsækjanda gerð skýrari. Áfram verða því gerðar ríkar kröfur til þeirra sem hyggjast sinna þessu mikilvæga starfi og að sumu leyti verða gerðar meiri kröfur til þeirra en samkvæmt gildandi lögum.

Ég hef nú farið yfir helstu nýmæli frumvarpsins. Ekki gefst tími til að greina frá öllum þeim breytingum sem felast í frumvarpinu en ítarlega er gerð grein fyrir þeim í almennri greinargerð sem fylgir því. Það er mikilvægt að vel takist til við endurskoðun laga og regluverks um leigubifreiðar. Um er að ræða lagabálk sem snýr að veitingu þjónustu sem gegnir mikilvægu hlutverki í samgöngukerfi landsins. Með samþykkt frumvarpsins mun íslensk löggjöf um leigubifreiðar að mínu mati uppfylla þjóðréttarlegar skuldbindingar ríkisins ásamt því að stuðla að auknu öryggi jafnt farþega sem leigubifreiðastjóra. Þá stuðlar frumvarpið að heilbrigðri samkeppni og nýsköpun í greininni og gerir skilyrði betri til að framboð þjónustu svari eftirspurn.

Virðulegi forseti. Að lokum legg ég til að eftir 1. umr. verði málinu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar sem og til 2. umr.