144. löggjafarþing — 76. fundur, 3. mars 2015.
fjármálafyrirtæki.
571. mál
Virðulegi forseti. Ég skil stundum ekki þessa spurningaleiki hérna. Þessi spurning varðar ekki beinlínis frumvarpið, ekki efnisatriði frumvarpsins. Ég hef margoft orðið var við það hér í andsvörum að menn hafa farið í alls konar spurningaleiki út fyrir efnið. Ég skal svara hv. þingmanni þessari spurningu hér frammi á gangi, en á meðan þetta varðar ekki beint efni frumvarpsins tek ég ekki þátt í þessum spurningaleik og því svara ég spurningunni ekki. Ég hef lokið máli mínu.