tilkynning um dagskrártillögu.
Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:
,,Ég undirritaður geri það að tillögu minni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga, að dagskrá næsta þingfundar, þann 11. febrúar, verði eftirfarandi:
Stjórnarskipunarlög (heildarlög), frumvarp, 415. mál á þskj. 510, nefndarálit á þskj. 947, 958 og 959, breytingartillögur á þskj. 948, framhald 2. umr.
Ég óska eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í lok þessa þingfundar.“
Undir bréfið ritar Þór Saari.
Forseti hefur móttekið tillöguna og hún verður borin upp í lok fundarins samkvæmt þingsköpum.