afmæliskveðjur.
Þannig háttar til að hv. þm. Birgir Ármannsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, er fimmtugur í dag [Fagnaðaróp í þingsal.] og vil ég fyrir hönd okkar alþingismanna og starfsmanna Alþingis óska honum til hamingju með daginn og fjölskyldu hans. (Gripið fram í: Syngja fyrir hann afmælissönginn?)
En það er víðar kátt hjá þingflokksformönnum þessa dagana því að hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokks Miðflokksins, varð fimmtugur sl. laugardag [Fagnaðaróp í þingsal.] og vil ég sömuleiðis óska honum og fjölskyldu hans til hamingju á þessum tímamótum.