131. löggjafarþing — 77. fundur, 21. feb. 2005.
Nýting mannvirkja á varnarliðssvæðinu.
[15:25]
iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):
Hæstv. forseti. Til þess að fá svör við fyrirspurn eins og þessari vil ég benda hv. þingmanni á að nota ekki þetta form. Þetta er of umfangsmikið til þess að ég geti svarað því óundirbúin. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu og mun að sjálfsögðu fara yfir hvar málið er statt í ráðuneytinu. Okkur berst mikið af bréfum og erindum og ég kann ekki svörin hér og nú.