146. löggjafarþing — 77. fundur,  31. maí 2017.

skattar, tollar og gjöld.

385. mál
[20:19]
Horfa

Smári McCarthy (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það eru margar ágætar breytingartillögur í tillögum hv. þingmanna Vinstri grænna í þessu máli. Það er mjög undarlegt að veita skattaívilnanir af þessu tagi í þessum tilgangi. Að öðru leyti er þetta skrýtinn bandormur sem ætti kannski frekar heima með fjárlagafrumvarpi eins og er hefð fyrir. Það er svona samtíningur af ýmsu. Þó er þannig ekki neitt agalegt í þessu að ástæða sé til að standa á móti þessu, ég mun því sitja hjá við afgreiðslu málsins.