148. löggjafarþing — 77. fundur, 12. júní 2018.
samkomulag um þinglok.
Herra forseti. Seint verður sagt að góður bragur sé á að ætla að afgreiða málið á þann veg sem stjórnarmeirihlutinn ráðgerir og það í algerri ósátt við flutningsmenn málsins. Ég tek undir með hv. þm. Þorgerði K. Gunnarsdóttur og öðrum sem hafa mælst til þess að gert verði hlé á þessum fundi þannig að formenn, og eftir atvikum formenn þingflokka, ráði ráðum sínum og finni þessu máli farsæla lausn.