138. löggjafarþing — 78. fundur,  22. feb. 2010.

tilkynning um dagskrá.

[15:02]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um kl. 3.30 í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram umræða utan dagskrár um fjárhagslega stöðu Álftaness og annarra sveitarfélaga. Málshefjandi er hv. þm. Magnús Orri Schram. Samgönguráðherra, Kristján L. Möller, verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.