143. löggjafarþing — 78. fundur, 20. mars 2014.
utanríkis- og alþjóðamál.
418. mál
Virðulegi forseti. Ég vildi bæta við að í skýrslunni er talað um að styðja við og kynna starfsemi hinna fjögurra skóla, Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, t.d. Jarðhitaskólans, Sjávarútvegsskólans og Landgræðsluskólans. Mig langaði til að hæstv. utanríkisráðherra minnti okkur á framlög til þessara verkefna á undanförnum fjárlögum og kannski framtíðarstefnu þar.