143. löggjafarþing — 78. fundur,  20. mars 2014.

utanríkis- og alþjóðamál.

418. mál
[15:03]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hef svo sem ekki myndað mér ákveðna skoðun á því enn þá, en hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur verið að skoða þetta mál eftir því sem ég best veit og fundur var haldinn, sem ég hafði því miður ekki tök á að vera viðstödd, með utanríkismálanefnd um málið. Ég fylgist svolítið með á hliðarlínunni og vil heyra hvað sérfræðingarnir segja áður en ég mynda mér endanlega skoðun. Ég er bara því miður ekki nógu vel að mér lögfræðilega á þessu sviði.