146. löggjafarþing — 78. fundur, 1. júní 2017.
fjármálaáætlun 2018--2022.
402. mál
Frú forseti. Ég á erfitt með að lýsa því í kurteislegu máli hversu mikil sturlun þessi fjármálaáætlun er og sú hugmyndafræði sem liggur að baki henni, hugmyndafræði sem á ekkert erindi í framtíðina. Ég mun að sjálfsögðu greiða atkvæði gegn henni og vona bara að einhver stjórnarliði í húsinu sé sofnaður þannig að við getum fellt þetta.