varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá 7. þm. Suðvest., Þorgerði K. Gunnarsdóttur, um að hún verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag, mánudaginn 18. mars, tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana 1. varamaður á lista Viðreisnar í kjördæminu, Sigríður María Egilsdóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.
Borist hefur bréf frá 4. þm. Norðaust., Þórunni Egilsdóttur, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni vegna veikinda. Í dag, mánudaginn 18. mars, tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Þórarinn Ingi Pétursson. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.