154. löggjafarþing — 79. fundur, 4. mars 2024.
framboð til forseta Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir ekki-svarið, vegna þess að þetta var eiginlega ekkert svar, af því að ég myndi vilja segja, eins og segir í kvæðinu: Já eða nei, af eða á. Ætlar hæstv. forsætisráðherra að bjóða sig fram til forseta eða er hún að íhuga það?