146. löggjafarþing — 8. fundur, 20. des. 2016.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
6. mál
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir þetta svar. Þá spyr ég til viðbótar hvort ekki sé ástæða til að kanna þann möguleika í ljósi þess að hann gæti skapað grundvöll fyrir því að við færum nánar í þetta mál yfir lengri tíma og værum ekki að skapa okkur einhvers konar óþægindi með tímaramma sem virðist vera mestmegnis heimagerður.