141. löggjafarþing — 80. fundur, 13. feb. 2013.
stjórnarskipunarlög.
415. mál
Forseti. Ég er glöð að heyra að þingmaðurinn hyggist fara yfir auðlindaákvæðið. Ég bíð spennt eftir þeirri ræðu enda veit ég að þingmaðurinn hefur yfirgripsmikla þekkingu á því sviði, þótt ég sé honum svo sem ekki alltaf sammála en það er annað mál. Hér erum við einmitt að takast á um mismunandi sjónarmið og til þess er þessi umræða. Ég bíð því spennt eftir ræðunni um auðlindaákvæðið.