152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

ákvörðun nr. 171/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

500. mál
[20:09]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 171/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og fella inn í samninginn eftirfarandi fjórar gerðir á sviði fjármálaþjónustu:

1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/92/ESB um samanburð gjalda er varða greiðslureikninga, skipti á greiðslureikningum og aðgengi að almennum greiðslureikningum.

2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2018/32 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/92/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um staðlaða hugtakanotkun Sambandsins yfir dæmigerðustu tegundir þjónustu sem tengjast greiðslureikningum.

3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/33 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar staðlað framsetningarform fyrir gjaldayfirlitið og sameiginlegt tákn þess samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/92/ESB.

4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2018/34 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar staðlað framsetningarsnið fyrir gjaldskrána og sameiginlegt tákn þess samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/92/ESB.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti eins og kemur fram í nefndaráliti sem liggur frammi.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti utanríkismálanefndar til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálitið rita auk þess sem hér stendur hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson og Steinunn Þóra Árnadóttir. Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur álitinu.