Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

ákvörðun nr. 215/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

462. mál
[20:00]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 215/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn. Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2019/2115 að því er varðar að stuðla að notkun vaxtarmarkaða lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín gesti, eins og kemur fram í nefndaráliti sem liggur frammi. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti utanríkismálanefndar til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson og Steinunn Þóra Árnadóttir. Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur álitinu.